Luke 18

1Þá sagði hann þeim dæmisögu um það, hvernig þeir skyldu stöðugt biðja og eigi þreytast: 2,,Í borg einni var dómari, sem hvorki óttaðist Guð né skeytti um nokkurn mann. 3Í sömu borg var ekkja, sem kom einlægt til hans og sagði: ,Lát þú mig ná rétti á mótstöðumanni mínum.` 4Það vildi hann ekki lengi vel. En að lokum sagði hann við sjálfan sig: ,Ekki óttast ég Guð að sönnu né skeyti um nokkurn mann. 5En þessi ekkja lætur mig aldrei í friði. Því vil ég rétta hlut hennar, áður en hún gjörir út af við mig með nauði sínu.``` 6Og Drottinn mælti: ,,Heyrið, hvað rangláti dómarinn segir. 7Mun Guð þá ekki rétta hlut sinna útvöldu, sem hrópa til hans dag og nótt? Mun hann draga að hjálpa þeim? 8Ég segi yður: Hann mun skjótt rétta hlut þeirra. En mun Mannssonurinn finna trúna á jörðu, þegar hann kemur?`` 9Hann sagði líka dæmisögu þessa við nokkra þá er treystu því, að sjálfir væru þeir réttlátir, en fyrirlitu aðra: 10,,Tveir menn fóru upp í helgidóminn að biðjast fyrir. Annar var farísei, hinn tollheimtumaður. 11Faríseinn sté fram og baðst þannig fyrir með sjálfum sér: ,Guð, ég þakka þér, að ég er ekki eins og aðrir menn, ræningjar, ranglátir, hórkarlar eða þá eins og þessi tollheimtumaður. 12Ég fasta tvisvar í viku og geld tíund af öllu, sem ég eignast.` 13En tollheimtumaðurinn stóð langt frá og vildi ekki einu sinni hefja augu sín til himins, heldur barði sér á brjóst og sagði: ,Guð, vertu mér syndugum líknsamur!` 14Ég segi yður: Þessi maður fór réttlættur heim til sín, en hinn ekki, því að hver sem upp hefur sjálfan sig, mun auðmýktur verða, en sá sem auðmýkir sjálfan sig, mun upp hafinn verða.`` 15Menn færðu og til hans ungbörnin, að hann snerti þau. Lærisveinarnir sáu það og átöldu þá. 16En Jesús kallaði þau til sín og mælti: ,,Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki. 17Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma.`` 18Höfðingi nokkur spurði hann: ,,Góði meistari, hvað á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?`` 19Jesús sagði við hann: ,,Hví kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema Guð einn. 20Þú kannt boðorðin: ,Þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni, heiðra föður þinn og móður.``` 21Hann sagði: ,,Alls þessa hef ég gætt frá æsku.`` 22Þegar Jesús heyrði þetta, sagði hann við hann: ,,Enn er þér eins vant: Sel allt, sem þú átt, og skipt meðal fátækra, og munt þú fjársjóð eiga á himnum. Kom síðan og fylg mér.`` 23En er hann heyrði þetta, varð hann hryggur við, enda auðugur mjög. 24Jesús sá það og sagði: ,,Hve torvelt er þeim, sem auðinn hafa, að ganga inn í Guðs ríki. 25Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.`` 26En þeir, sem á hlýddu, spurðu: ,,Hver getur þá orðið hólpinn?`` 27Hann mælti: ,,Það sem mönnum er um megn, það megnar Guð.`` 28Þá sagði Pétur: ,,Vér yfirgáfum allt, sem vér áttum, og fylgdum þér.`` 29Jesús sagði við þá: ,,Sannlega segi ég yður, að enginn hefur yfirgefið heimili, konu, bræður, foreldra eða börn Guðs ríkis vegna 30án þess að hann fái margfalt aftur á þessum tíma og í hinum komandi heimi eilíft líf.`` 31Hann tók þá tólf til sín og sagði við þá: ,,Nú förum vér upp til Jerúsalem, og mun allt það koma fram við Mannssoninn, sem skrifað er hjá spámönnunum. 32Hann verður framseldur heiðingjum, menn munu hæða hann, misþyrma honum og hrækja á hann. 33Þeir munu húðstrýkja hann og lífláta, en á þriðja degi mun hann upp rísa.`` 34En þeir skildu ekkert af þessu, orð þessi voru þeim hulin, og þeir skynjuðu ekki það, sem sagt var. 35Svo bar við, er hann nálgaðist Jeríkó, að blindur maður sat þar við veginn og betlaði. 36Hann heyrði, að mannfjöldi gekk hjá, og spurði, hvað um væri að vera. 37Var honum sagt, að Jesús frá Nasaret færi hjá. 38Þá hrópaði hann: ,,Jesús, sonur Davíðs, miskunna þú mér!`` 39En þeir sem á undan fóru, höstuðu á hann, að hann þegði. En hann hrópaði því meir: ,,Sonur Davíðs, miskunna þú mér!`` 40Jesús nam staðar og bauð að leiða hann til sín. Er hann kom nær, spurði Jesús hann: 41,,Hvað vilt þú, að ég gjöri fyrir þig?`` Hinn svaraði: ,,Herra, að ég fái aftur sjón.`` 42Jesús sagði við hann: ,,Fá þú aftur sjónina. Trú þín hefur bjargað þér.`` 43Jafnskjótt fékk hann sjónina. Og hann fylgdi honum og lofaði Guð. En allt fólkið, er sá þetta, vegsamaði Guð.
Copyright information for Icelandic